BLOGG JÓNÍNU OG TRISTAN :-)
Myndasíðan mín
08.09.2006 13:08:20 / jonina

Seint um síðir......

Jæja, sorry enn og aftur að ég set aldrei neitt hérna inn. Málið núna er það að talvan mín er biluð :( Þannig að oftast kemst ég ekki einu sinni inn á neinar heimasíður :( Alltaf frjósandi og svona skemtilegheit þannig að ég er eginlega bara búin að gefast upp á að reyna.

En annrs er svo sem hellingur nýtt að frétta enda langur tími liðinn síðan að ég skrifaði síðast :)

Þann 27. ágúst hafði ég það loksins af að skíra littla Tristan :D Ég lét nú ekkert verða úr því að gefa honum 3 nafnið, eins og ég hafði hugsað, þannig að það var bara Tristan Alexander :D

Skírnin var bara voðalega fín :) Fyrir utan að vísu að bæði ég og Tristan vorum með smá flensu ;) En við létum það ekkert á okkur fá á þessum degi :) Hann var voða sætur og fínn í voðalega fínum skírnarkjól og svo á eftir fór hann í algjör dúllu föt sem að afi hans keyptir handa honum :) Og allir töluðu um það hvað hann væri ofsalega rólegur og góður :) Grét ekki einu sinni við skírnina.

Ég ætlaði að setja inn myndir en út að því hvað talvan mín er biluð að þá næ ég ekki að setja neinar myndir inn :( Verður bara að koma seinna :(

Svo fór hann í 3 mánaða skoðunina á miðvikudaginn og fékk þar fyrstu bólusetninguna. Grétt ekki einu sinni þegar hann var sprautaður :) Algjör hetja ;)  Hann var líka mældur og viktaður og er orðin 60.5 cm og 6900 kg. Aðeins yfir meðalþyngd á hans aldri ;) En það er bara flott :)

Hann er orðinn svo duglegur, heldur auðvitað alveg orðið haus, er farin að reyna að ná í dót í kringum sig og finnst allt alveg rosa spennandi :) Sérstaklega hún Týra (tíkin hennar mömmu) :) Það er nú samt varla hægt að segja að sú hrifning sé gagnkvæm ;)

Svo er ég auðvitað byrjuð í skólanum :) Vona að það reddist einhvernvegin :) Er samt strax farin að panica pínu :) En þetta bjargast eflaust allt :)  Er sem sagt komin í fjarnám í HÍ, í Mannfræði og Þjóðfræði. Virkar mjög skemtilegt nám :) En alveg rosalega mikð að gera í því.

Og svo er það rúsínan í pylsuendanum :) Ég er búin að kaupa mér íbúð :D Eða svona því sem næst. Ég er búin að gera tilboð í íbúð sem var samþykkt en það á ennþá eftir að ganga frá íbúðarláninu. Ef og þegar að það gegnur í gegn að þá verð ég komin með íbúð :)

Hún er nú svo sem alls ekkert eitthvað flott en hún var ódýr og hún er mín :) Þannig að ég bara geri hana kósý. Ég er allaveganna hrifin af staðsetningunni. Hún er sem sagt á Nesveginum í vesturbænum í Rvk :) Þannig að já, það styttist í að ég flytji aftur í bæinn.

Veit samt ekki alveg hvenær ég á eftir að flytja því að það þarf að vinna svolítið mikið í íbúðinni áður en hægt verður að flytja inn. En allaveganna fyrir jól :) Vonandi jafnvel eftir mánuð eða svo :)

Kemur bara allt í ljós. En allaveganna að þá reyni ég að setja inn myndir sem fyrst en það gæti tafist út af ástandinu á tölvunni :(

En endilega látiði heyra í ykkur :) Bæ í bili


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.08.2006 21:07:14 / jonina

Loksins loksins.....

Sorry sorry, ég veit ég er ekki búin að setja neitt hérna inn alveg hryllilega lengi :S Er eitthvað svo voða löt við þessa tölvu eins og er. Einhvernvegin alltaf bara nóg annað að gera :)

En annars er bara allt rosalega fínt að frétta :) Ég og Tristan höfum það bara voðalega fínt. Hann gerir ekkert annað en að stækka :) Er orðinn bara svaka bolti ;) Ég er svo sem ekki búin að fá vigtun eða neitt á hann í 2 vikur en ég fór með hann síðast í 8 vikna skoðun. Þá var hann orðinn 5.2 kg :D Ekkert smá flott bara og er pottþétt búinn að þyngjast töluvert síðan þá. Ég allaveganna skellti mér á viktina í dag og tók hann svo með mér og reiknaði þannig út að hann væri um 6 kg núna. Er náttúrulega ekkert rosa nákvæmt en eitthvað nærri lagi :)

Hann er líka að verða mikið betri í maganum en hann hefur verið og er loksins farinn að sofa eitthvað (7,9,13 :) ) Vona bara að það haldist :). En ég er ennþá að bíða eftir því að hann fari að brosa eitthvað að ráði :S Er alveg farið að langa til að sjá það :) Það er búið að örla á smá glotti hjá honum síðustu vikurnar en aldrei almenninlegt bros í rauninni og bara einstaka sinnum líka. Kanski finnst honum bara svona leiðinlegt hjá mér að hann sér enga ástæðu til að brosa ;)

Við erum bara ennþá í sveitinni hjá mömmu. Ég er svo sem á fullu að leyta að íbúð fyrir okkur en það virðist ekki ætla að ganga neitt sérstaklega hratt fyrir sig. Ég er búin að skoða helling en ekkert sem kemur neitt til greina. Maður verður nú að vera pínu vandlátur þegar að maður er að fara að kaupa :S En það fer vonandi eitthvað að gerast :)

Svo er ég að fara að byrja í skólanum eftir bara um 2 vikur :D Vá hvað það verður skrítið, ég hef ekki verið að læra svo lengi :S Ég vona bara að ég ráði við þetta. Er náttúrulega eflaust svolítið strembið þar sem að ég er líka með hann svona lítinn. En ég ætla nú samt að reyna þetta :) Verð bara að reyna að nýta tímann sem best og skipuleggja mig vel :)

Annars er svo sem ekkert sérstakt annað að frétta sem að ég man eftir í bili en ég ætla svo að reyna að fara að setja fleiri myndir að littla kalli inn á webshots myndasíðuna hans :)

Heyri bara í ykkur :)


» 6 hafa sagt sína skoðun

19.07.2006 16:51:26 / jonina

Læknisskoðun....

Fór í dag með strákinn í 6 vikna skoðun. Og þær voru bara rosa ánægðar með hann :D Hann er núna kominn upp í 4320g og 55.4 cm :D Alveg þvílíkt að stækka :) Þær allaveganna hrósuðu mér fyrir að gefa honum greinilega vel að borða ;) Ég held að ég hafi nú svo sem aldrei verið þekkt fyrir að svelta neinn í kringum mig ;)

En annars er hann búinn að vera frekar órólegur undanfarið og þá sérstaklega á næturnar. Ég er búin að vera að prófa að gefa honum einhverja dropa og líka te sem á að róa magann en það hefur lítið gert.  Læknirinn fór því að spyrja mig meira út í þetta og skoðaði hann í töluverðann tíma og það lítur út fyrir að hann sé með vélindabakflæði :( Það er nú að vísu segir hún frekar algengt hjá börnum og lagist bara að sjálfu sér á nokkrum mánuðum. En samt sem áður gefa þeir mixtúru við þessu til að láta þeim littlu líða  betur :) Mixtúran var að vísu ekki til en ég fæ hana líklega eftir um 2 daga eða svo. Þannig að þá á að koma í ljós alveg strax hvort að þetta sé málið. Þessi mixtúra virkar bara eiginlega strax.

Vona bara að það sé komin einhver lausn á þetta svo að það sé hægt að láta littla kútnum líða eitthvað betur :)

Af mér er annars bara allt fínt að frétta :) Ég kíkti aðeins á Freyju vinkonu í gærkvöldið þegar að hún kom heim :) Alltaf jafn gaman að sjá hana :) Hún var að vísu að fara svo í dag í 3 daga ferð með fjölskyldunni sinni en hún verður komin aftur fyrir helgi til að koma með í partýið hjá Auði :) Hlakkar svo til að fara þangað :D Alltaf stuð í sveitinni :)

Ég er svo sem ekki búin að gera neitt síðustu daga. Hef ekki nennt að vera að fara neitt svo sem alveg ástæðulaust ef maður hefur ekkert sérstakt að gera. Er bara búin að vera heima að vera dugleg að þvo þvott og taka til. Voða spennandi ;) En það verður víst að gera það stundum.

Hvernig er það annars, hafið þið eitthvað heirt um SKO símafyrirtækið? Ég er nefnilega að flytja mig yfir í það (bara að prófa). Þar sem að það er nú töluvert ódýrara af því að ég hringi svo mikið í fólk hjá öðrum símafyrirtækjum og heimasíma. Þá er mínútugjaldið mikið lægra og líka mikið ódýrara að senda sms. Vona bara að ég verði ekki á endalausum skuggasvæðum ;) Endilega ef þið hafið prófað SKO látiði mig vita hvor það sé Ok,

En annars ætla ég að fara að sinna littla aðeins. Verð í bandi :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.07.2006 23:33:41 / jonina

.......nýjar fréttir.....

Mig hlakkar svooooo til á morgun :) Freyja vinkona sem býr í Danmörku er að koma aftur til landsins :) Venjulega sé ég hana í mesta lagi einu sinni á ári en núna er hún að koma aftur :) Kom síðast í apríl. Þannig að ég get sýnt henni littla Tristan minn :D

Ætli ég reyni ekki að eyða smá tíma með henni á meðan að hún verður hérna. Þar að segja ef hún er ekki með alveg fullbókaða dagskrá :S Kemur svo sem ekkert á óvart ef hún er það ;)

Svo býð ég bara eftir næstu helgi :) Ég veit að það er bara mánudagur en mér er alveg sama :)  Næstu helgi er ég nefnilega að fara til Auðar vinkonu í smá partý :) Hún er að fara að halda upp á útskriftina sína og bróðir hennar er að halda upp á 40 ára afmælið sitt í leiðinni. Þau ætla því að vera með rosa grillpartý heima hjá Auði (þeir sem ekki vita að þá býr hún í sveit). Það verður sem sagt grillað og skemt sér vel og ef veður leyfir að þá verður höfð smá brenna :D       Í þau skipti sem ég hef farið á eitthvað djamm þarna í sveitinni að þá hefur undanteknilaust verið ógeðslega gaman :) Þannig að mig hlakkar þokkalega til. Og ekki skemmir fyrir að Freyja getur verið með okkur :) Langt síðan að það gerðist síðast :).

Annars er svo sem ekkert sérstakt í fréttum eins og er af okkur. Ég var bara alveg hryllilega löt um helgina og fór varla út úr húsi nema bara til að fara og leigja mér spólu og kaupa eitthvað að borða :S Hámark letinnar. En annars var það voðalega gott svo sem.

Er annars að hugsa hvort ég eigi eitthvað að kíkja í bæinn í vikunni. Það er aldrei að vita :)  Annars ætla ég að fara að koma mér í háttinn núna. Heyri í ykkur seinna :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.07.2006 18:47:54 / jonina

myndir

Jæja, var loksins að setja inn nokkrar myndir í viðbót af Tristan. Allt inn á bumbumyndasíðunni hérna til hliðar :)

Ég ætla nú að reyna að vera ennþá duglegri en ég hef nú sagt það áður ;)

Annars er bara allt rosa gott að frétta. Við höfum það bæði bara voða gott :) Erum núna í dag búin að vera heima að slappa af eftir allt flakkið undanfarið.

Svo er Freyja vinkona að koma til landsins á þriðjudaginn í næstu viku :D Er alveg þokkalega farið að hlakka til að hitta hana aftur :) Og ég veit að hún er líka orðin svolítið spennt að sjá Tristan.  Ætli ég hún og Auður förum ekki eitthvað að vesenast saman þegar að hún kemur.

Svo verðiði endilega að kíkja á nýja bloggið sem ég, Mona og Thelma erum með saman :) Slóðinn á því er hérna hliðiná.


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.07.2006 14:47:11 / jonina

Afmæli Afmæli

Til hamingju með afmælið

Mona og Eva mágkona :D 

Vona að þið hafið það báðar rosa gott í dag.

Ég var að reyna að hringja í þig Eva áðan á Skype en þú vart ekki tengd :S Vildi bara óska þér til hamingju með daginn og vona að þú hafir það rosalega gott :) Allaveganna öruglega gaman að vera búin að fá Jóa heim í smá tíma. Vona bara að þið náið að gera eitthvað skemtilegt saman :)

Og Mona mín, vona líka að þú njótir dagsins sem best . Annars kem ég nú til þín í grill á eftir þannig að hlakka bara til að sjá þig :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.07.2006 16:54:29 / jonina

vitlaus slóði :S

Vitlaus slóði sem ég setti hérna áðan. Réttur er:

www.blogg.central.is/ufsagrylur    :D

Endilega kíkiði :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.07.2006 16:50:54 / jonina

Halló :)

Voðalega virðist þetta vera eitthvað flókið hjá mér að koma inn færslum hérna ;)

En allaveganna að þá er ég voða lítið búin að vera heima undanfarið þannig að það er góð afsökun fyrir því að það eru engar nýjar færslur búnar að vera :) Ég er búin að vera að hanga heima hjá Thelmu greyinu öruglega að gera hana vitlausa á að hafa mig og strákinn hjá sér :S Vona samt að hún hafi meikað okkur :)

Veit svo sem ekki hvað ég á að segja ykkur. Það eru nú engar sérstaklega spennandi fréttir frá okkur :$

Tristan littli varð veikur í fyrradag :( Byrjaði bara að æla alveg eins og brjálaður :( Greyið !!!!! :S        Þannig að það endaði með því að ég hafði samband við lækni og hann sagði mér að fara inn á bráðamótöku á barnaspítalanum :S Það endaði svo þannig að við eyddum nóttunni og meiri hluta gærdagsins inni á spítala :( Og ég sem var nú að vona að þurfa ekki að koma þangað alveg svona fljótt aftur ;)

En það var líklega ekkert alvarlegt að. Líklega bara vírus en hann þurfti samt að fá vökva í æð þar sem að hann var farinn að þorna svo. En að öðru leyti var þetta ekkert mikið mál.

Við erum svo komin heim aftur núna :) Og allt í góðu :D

Heyrðu jú!!!!!!!  Ég er komin inn í HÍ :D Búin að borga skólagjöldin og allt þannig að nú er ekki aftur snúið :D Fer sem sagt í Þjóðfræði í haust :)  Vona bara að það gangi allt saman. Ég ætla að byrja á því að fara í fjarnám þannig að ég nái að vera hjá stráknum en samt líka vonandi að læra :)

Svo erum við Mona og Thelma búnar að búa okkur til sameiginlegt blogg :) Spurning hversu duglegar við verðum að setja inn færslur þar ;) En allaveganna ef þið hafið einhvern áhuga á að kíkja á það að þá er það:  www.blogg.central.is/ufsagryla Svolítið spes nafn ég veit ;) En bara svona smá einkáhúmor :)

Svo er loksins komið að því að ég má fara að æfa :D Ég stefni á að mæta í ræktina á föstudaginn :) vona bara að ég nái að vera dugleg og koma mér fljótt í gott form :) Þið verðið bara að vera dugleg að hvetja mig ;) og minna mig á það ;)

Jæja ætla að láta þetta duga í bili :) Heyrumst bara. og ég set inn fleiri myndir fljótlega á bumbumyndasíðuna :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.07.2006 17:23:40 / jonina

Stækkar og stækkar

Þá er strákurinn orðinn 4 vikna gamall :D Og hjúkrunarfræðingurinn kom í 2 heimsókn sína hingað heim til að kíkja á hann og ath hvernig hann er að standa sig :)

Vitir menn, strákurinn er búinn að þyngjast heil ósköp :) Hann var 3050g á mánudaginn í síðustu viku þegar að hún kom en núna þegar að hann var viktaður var hann 3600g :D Sem sagt hefur þyngst um 550g á bara einni viku :) Geri aðrir betur :)

Þannig að það er nokkuð ljóst að hann er allaveganna að dafna vel hérna hjá mér :)

Annars er bara allt voða gott í fréttum. Fór í sveitina til Auðar vinkonu um helgina og við höfðum það bara voða huggulegt þar :) Erum annars bara búin að vera voða róleg á því síðustu vikuna. Tristan littli er búinn að vera með pínu í maganum þannig að ég hef ekki viljað vera að þvælast með hann með mér um allt þegar að honum líður ekkert allt of vel. En ég er að fara með hann til barnalæknis á miðvikudaginn til að ath hvort að það sé ekki allt í lagi.

Svo er nú farið að nálgast að ég geti farið að fara í ræktina :D Er búin að vera að bíða eftir því frá því eginlega um leið og að ég varð ófrísk og fór að lenda í smá vandræðum með meðgönguna þannig að ég mátti ekki æfa :S En núna fer ég að mega byrja aftur :D Mér skildist að það miðaðist við 6 vikur frá því að maður fæddi en ég ætla að spyrja læknirinn á miðvikudaginn hvort ég megi kanski bara fara núna. Mig grunar að þessi 6 vikna regla sé meira út af brjóstamjólkinni og þar sem að ég mjólka hvort sem er ekki :( að þá get ég nú ekki eyðilagt það.

En ég ætla nú að reyna að fara að koma í bæinn og kíkja á einhveja :) Er bara að vonast til að Tristan fari að líða betur áður en ég fer að þvælast mikið.

Heyri annars bara vonandi fljótlega í ykkur öllum :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.06.2006 20:40:11 / jonina

Myndir af stráknum :D

Lang sætastur <img src=" src= "http://image48.webshots.com/48/3/39/57/2053339570086022440QdlLHZ_ph.jpg" width="520" border="0" name= "photo_2053339570086022440">

Elska snudduna mina <img src=" src= "http://image38.webshots.com/39/1/39/63/2273139630086022440BOEmNu_ph.jpg" width="520" border="0" name= "photo_2273139630086022440">

Ad fara ad lulla i voggunni minni.

Jæja hérna eru einhverjar myndir af honum :D Svo eru fleiri myndir inni á síðunni hérna til hliðar "bumbumyndir". Og ég er að reyna að vera dugleg að mynda hann þannig að ég geti haldið áfram að setja inn myndir reglulega :)

Látiði mig endilega vita ef að þið sjáið ekki myndirnar hérna.


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.06.2006 19:40:54 / jonina

Gengur rosa vel :)

Vá hvað það er eitthvað erfitt fyrir mig að halda svona síðu uppi :S Ég er bara svo löt við að setja eitthvað inn á netið. En ég er að reyna að standa mig eins vel og unnt er ;)

Annars er ég loksins búin að koma inn myndum af Tristan í tölvuna hjá mér en það gengur eitthvað illa að koma þeim á netið :S Þar sem að myndirnar eru svo stórar hjá mér og ég kann bara ekki að minnka þær :( Tekur alveg heila eilífð að reyna að senda mynd eða hlaða inn á einhverjar síður :(         En ég ætla samt að reyna að skella einhverju bara hér inn og ath hvort þið náið að sjá þær :)

En svona af okkur hérna er annars bara allt gott að frétta :) Tristan littli er svo sætur :D og bara rosalega góður líka :D Algjör engill :)

Það kom hjúkrununarfræðingur hingað á mánudaginn að kíkja á hann og hann var þá búinn að þyngjast um 300g á einni viku :) Sem er víst bara mjög gott :D Þannig að núna er hann um 3050g :D Ennþá frekar lítill en allur að styrkjast og að koma til :)

Ég sjálf hef það líka bara rosalega gott :) Orðin bara voða hress og sést varla á mér að ég hafi verið að eignast barn fyrir um 3 vikum :) Ætla svo sem ekki að kvarta yfir því :)

En jæja ég ætla að fara að vinna í því að koma einhverjum myndum hérna inn :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.06.2006 19:56:08 / jonina

Komin heim :)

Við komum loksins heim í gær :D

Tristan littli fór bara allt í einu að taka við sér þannig að læknarnir tóku bara skyndiákvörðun um að útskrifa hann í gær :) Ekki það að ég fari neitt að kvarta yfir því ;) Verð að viðurkenna að það er ekkert sérstaklega spennandi að hanga þarna uppi á landspítala allann daginn alla daga í 3 vikur :S En það var nú lítið við því að gera. Ég er bara ánægð með að hann skyldi taka við sér þetta snemma :)

Hann er eðlilega ennþá voðalega þreyttur og orkulaus. En samt sem áður mikið hressari en hann var. Hann er ennþá svolítið latur við að drekka en ég verð bara að vera ákveðin og vekja hann til að koma mjólkinni ofan í hann ;)  Þetta tekur allt bara svolítinn tíma.

Það er bara svo ógeðslega kósý að vera búin að fá hann heim þannig að ég get verið með hann allann daginn og á nóttunni líka. Uppi á vökudeild á landspítalanum að þá get ég eðlilega ekki verið hjá honum á nóttinni og á milli 9-12 á morgnanna að þá má maður heldur ekki vera hjá þeim :( Þannig að ég var farin að verða svolítið óþolinmóð að geta verið aðeins með littla prinsinn minn í friði og ró og geta kúrt aðeins með honum :D Það er svo þægilegt :)

Annars að þá erum við bara voða hress og kát og höfum það bara voðalega fínt. Þannig að það þarf enginn að hafa neinar áhyggjur :)

Erum bara hérna í sveitinni að slappa af þannig að ef þið hafið áhuga á að kíkja að þá er það alveg velkomið :)

Reyni að setja myndir inn fljótlega :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.06.2006 20:53:32 / jonina

Kominn strákur :) .....

Jæja, loksins set ég eitthvað hérna inn :)

Það er fæddur rosalega sætur lítill strákur :D Kom í heiminn á mánudaginn í síðustu viku þann 05.06.06 um kl 10:15 :)

Eins og flestir kanski gera sér grein fyrir að þá átti hann ekki að vera kominn í heiminn svona snemma en honum lá bara svolítið á ;)

Ég fór sem sagt sjálf fyrir um 2 vikum síðan í venjulega mæðraskoðun og hélt bara að allt væri í ok lagi. En þá kom í ljós í prufunum sem eru gerðar þar að ég var komin með meðgöngueitrum :S Ekki mjög gaman :(    Þannig að ég var bara lögð inn á stundinni á Selfossi.        2 dögum seinna var ég svo send á Landspípalann í Reykjavík og fékk að vita það að ég yrði að liggja þar inni þangað til að ég myndi fæða eða þar til ég yrði bara sett af stað.

Eitrunin fór svo bara vaxandi þannig að á mánudagsmorguninn þann 5. júní var tekin ákvörðun að setja mig af stað þar sem að ástandið var farið að verða bæði hættulegt fyrir mig og barnið :S

Það gekk voðalega hægt í fyrstu að setja mig af stað en loksins þegar að eitthvað fór að gerast að þá kom hann heldur betur á hlaupum í heiminn :) Fæðingin sjálf tók ekki nema rétt um 10 mín þannig að ég get þokkalega ekki kvartað :)

Aftur á móti var töluvert erfiðara fyrir littla guttann að rjúka svona hratt í heiminn og líka fyrir tímann :S Þannig að hann varð að fara inn á vökudeild :(  Hins vegar er búið að gera alveg fult af prufum á honum og allt komið eðlilega út. Hann er samt ennþá inni á Vökudeild landspítalans og verður þar líklega eitthvað áfram. Hann er bara ennþá voðalega þreyttur og orkulaus og þarf bara svolítið meiri tíma í að jafna sig. En annars er hann rosalega fínn og flottur og alveg heilbrigður :D Þannig að ég er bara óskaplega hamingjusöm með gaurinn :D

Annars svo að þið vitið það að þá er ég ekki með internetaðgang þar sem að ég er núna en ég fékk bara littla íbúð hérna niðri í bæ á meðan að strákurinn er hérna. En ég get komist í tölvu hérna uppi á spítala en af einhverri ástæðu get ég ekki komist inn á e-mailið mitt í henni :( Þannig að það þýðir lítið að senda mér e-mail í augnablikinu.

Ég er líka bara alveg rosalega upptekin að reyna að sinna stráknum og reyna að fá hann til að hressast eitthvað þannig að dagarnir núna fara voða mikið í það bara og ég er mest allann daginn uppi á spítala. En það er alltaf hægt að reyna að hringja ef þið viljið eitthvað ná í mig :)

Og líka ef að þið vljið sjá myndir af littla prinsinum að þá getiði farið inn á síðuna hjá Jóa bróður. Linkurinn inn á hana er hérna til hliðar :) Ég er ekki með neina aðstöðu til að setja inn myndir sjálf fyrr en ég kemst heim með strákinn.

En annars að þá reyni ég að setja inn hérna ef að það eru einhverjar nýjar fréttir af mér og stráknum :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 00:40:30 / jonina

Sakna Isabelle :(

Sakna alveg littlu stelpunnar minnar :( Væri svo til í að geta hafa tekið hana heim með mér :(   Vona bara að hún hafi það gott þar sem að hún er.


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 00:25:32 / jonina

Sorry sorry

Sorry, allir sem ég hef ekki haft samband við eftir að ég kom heim :S Ekki taka því neitt persónulega. Ég er bara búin að vera ógeðslega þreytt og líka föst í sveitinni hjá mömmu. Þannig að þeir sem eru ekki búnir að vera að reyna að hringja í mig og elta mig uppi hafa líklega ekkert heyrt frá mér :( Ég skal reyna að fara að gera eitthvað í þessu en eins og er, að þá er ég bara alveg á fullu við að koma öllu á hreint hérna heima :S

Vonast samt til að heyra í ykkur öllum fljótlega :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8